Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunar var til viðtals við fréttaritara Fótbolta.net að loknum leik Keflavíkur og Stjörnunar í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld en Stjarnan hafði þar 1-0 sigur. Um mat sitt á leiknum sagði Kristján.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 1 Stjarnan
„Frammistaðan er bara fín, þetta var eitthvað sem við sáum vera að þróast í vikunni að liðið var aðeins að líta inn á við og bæta fyrir frammstöðuna í síðasta leik í deildinni. Sóknarleikurinn fínn, allar hreyfingar á liðinu, hvernig við mönnum teiginn og hvernig við vinnum fráköstin. Þetta var bara fínt og varnarleikurinn líka.“
Eftir að hafa náð forystu í fyrri hálfleik seig lið Stjörnunar nokkuð neðar á völlinn og freistaði þess að veiða Keflavíkurliðið ofar á völlinn og sækja svo hratt á þær.
„Þegar þú ert komin yfir í bikar þá veistu alveg hvað þarf að gera til þess að vinna hann. Það þarf að spila góðan varnarleik. Við byrjum seinni hálfleik nokkuð vel sóknarlega og eigum alveg möguleika á að bæta við marki. Svo kemur það ekki og þá fer síðasti hálftíminn í að halda ró og vita hvað við erum að gera og stýra leiknum án boltans. “
Það olli fréttaritara nokkrum vonbrigðum að aðeins 72 áhorfendur hafi verið taldir inn á leik kvöldsins og það þrátt fyrir að Keflavík hafi reynt að trekkja fólk að. Boðið var upp á fríar pylsur til að mynda en það dugði því miður ekki til. Kristján var spurður út í þessa dræmu mætingu.
„Þetta er búið að vera svolítið mikið svona í þessum leikjum í sumar eða vor, ég veit ekki hvort það er komið sumar. En þetta er eitthvað sem þarf að fara að hugsa upp á nýtt held ég. Hvernig við fáum fólk á völlinn og upp á hvað erum við að bjóða. Ég held að það sé eitthvað sem félögin þurfa að spyrja sig að. Fólk er farið að fylgjast með liðunum á annan hátt eins og á samfélagsmiðlum og þess háttar þannig að félögin þurfa að aðlaga sig að nýjum veruleika.“
Sagði Kristján en allt viðtalið má sjá hér að ofan
Athugasemdir





















