Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   lau 18. apríl 2026 20:41
Brynjar Óli Ágústsson
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Eimskip
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér fannst þær vera með yfirhöndina í fyrri hálfleik, en mér fannst við taka yfirhöndina í seinni hálfleik. Getum verið svekkt að við skoruðum ekki mörk.'' segir Glódís Perla eftir 0-1 tap gegn Englandi.


Lestu um leikinn: Ísland 0 -  1 England

Glódís náði því risa markmiði að verða leikjahæsti leikmaður kvenna landsliðsins eftir leikinn í dag gegn Englandi með 146 leiki.

„Bara ótrúlega stolt. Stór stund, virkilega gaman og ég er bara svo ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland. Það er virkilega gaman að eiga þetta met núna og vonandi get ég haldið áfram að bæta ofan á það.''

Glódís var spurð út í hvernig það væri að slá svona met gegn liði eins og England.

„Það hefði verið skemmtilegra ef við hefðum unnið. Nei auðvitað bara gríðarlega stolt af frammistöðunni hjá liðinu í dag. Að tapa eitt núll á móti Evrópumeisturum og þær voru að vinna Spán í seinasta leik og vera bara hundfúll með það, er svona vond tilfinning en á sama góð tilfinning,''

Það var vel mætt á Laugardalsvöll í dag og stuðningsmenn stóðu þétt við bakið á stelpunum okkar.

„Það var gríðarlega gaman að horfa upp í stúku og hún var nánast full. Það bara gefur manni ógeðslega mikið og náttúrulega geggjaður dagur og gott veður. Fyrir mig persónulega þá bara gerði þetta daginn enn þá meira sérstakan.''

Næsti gluggi landsliðsins er í júní þar sem liðið mæti Úkraínu og Spán.

„Maður er kannski ekki búin að hugsa þangað akkúrat núna, en við þurfum bara að fara til Póllands og sækja sigur á móti Úkraínu og koma okkur í frábæra stöðu í þetta þriðja sæti sem við erum mikið að tala um,''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan 


Slapp
banner
banner
banner