Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
   mið 18. september 2013 19:43
Magnús Már Einarsson
Ejub Purisevic: Rosalegt afrek
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við vorum að spila vel. Við skoruðum strax í byrjun og hlutirnir urðu auðveldari eftir það," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir 5-0 sigur liðsins á ÍA í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  5 Víkingur Ó.

,,ÍA er rosalega stórt fyrir okkur. Þegar ég fór til Ólafsvíkur fyrir 10-11 árum þá var Víkingur í riðlakeppni í 4. deild en ÍA var bikarmeistari. Í dag unnum við þá og það er rosalegt afrek."

Þrír Spánverjar komust á blað hjá Ólafsvíkingum í dag en liðið er með fjóra slíka innan sinna raða.

,,Þeir spiluðu vel í dag. Þeir þurfa stundum tíma til að aðlagast. Þetta eru fínir strákar, þeir æfa vel og í dag voru þeir flottir."

Þór og Keflavík gerðu 2-2 jafntefli í hinum fallbaráttuslag kvöldsins í Pepsi-deildinni. ,,Ég er heiðarlegur og ég hefði viljað sjá Keflavík vinna en ég ræð engu um það," sagði Ejub.

Næsti leikur Ólafsvíkingar er gríðarlega mikilvægur en þá heimsækir liðið Fylkismenn.

,,Þessi leikur segir okkur ekki neitt. Hann gaf okkur bara tækifæri að komast aftur inn. Næsti leikur skiptir máli."

,,Það er eitt sem skiptir mig og bæjarbúa máli. Það er að eiga lið sem er í úrvalsdeildinni og er ekki til skammar. Við erum með lið sem getur spilað í úrvalsdeildinni og við getum farið á Fylkisvöll og náð í stig."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner