Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætlar að sannfæra Cole Palmer um að koma „heim" til Man Utd
Cole Palmer.
Cole Palmer.
Mynd: EPA
Cole Palmer hefur undanfarin misseri verið orðaður við Manchester United og núna hefur vinur hans sagt að hann ætli að sannfæra Palmer um að fara þangað.

Palmer var nýverið í fríi í Dúbaí þar sem hann hitti Tunde, rappara frá Manchester. Þeir eru vinir en Palmer deildi mynd af þeim félögum.

Tunde endurbirti myndina og skrifaði: „Einn daginn mun ég fá Cole Palmer heim til Man Utd þar sem hann á heima. Spyrjið hann hvað er uppáhalds liðið hans."

Palmer lék með Manchester City áður en hann fór til Chelsea þar sem hann hefur slegið í gegn. Hann ólst hins vegar upp sem stuðningsmaður United og leit mikið upp til Wayne Rooney.

Palmer er á sínu þriðja tímabili með Chelsea en hann er samningsbundinn félaginu til 2033.
Athugasemdir
banner
banner
banner