Það eru þrír leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í kvöld þar sem stórleikur kvöldsins fer fram á Hlíðarenda.
Valur tekur þar á móti Fram í A-deild og geta Valskonur tekið toppsæti riðilsins með sigri.
Valur er með sex stig eftir þrjár umferðir á meðan Fram er aðeins komið með eitt stig úr tveimur fyrstu leikjum sínum.
Í C-deildinni á Augnablik leik við ÍR í Fífunni í kvennaflokki áður en SR spilar við Álftanes í Þróttheimum í karlaflokki.
Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 2
18:00 Valur - Fram (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 2
19:00 Augnablik - ÍR (Fífan)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 2
20:00 SR - Álftanes (Þróttheimar)
Athugasemdir




