Arne Slot, stjóri Liverpool, sagði frá því á fréttamannafundi í dag að Jeremie Frimpong væri ekki klár í slaginn gegn Nottingham Forest á sunnudag.
Frimpong hefur verið að glíma við nárameiðsli undanfarnar þrjár vikur.
Frimpong hefur verið að glíma við nárameiðsli undanfarnar þrjár vikur.
Hægri bakvarðarstaðan er vandamál fyrir Liverpool þar sem Connor Bradley er frá út tímabilið og Wataru Endo spilar heldur ekki meira á tímabilinu.
Slot vonast til að Frimpong verði með gegn West Ham um þar næstu helgi en Joe Gomez er klár í að byrja.
„Já, ég held það," sagði Slot spurður út í Gomez sem er kominn til baka eftir meiðsli.
Athugasemdir




