Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í viðræðum við tvö félög
Michail Antonio.
Michail Antonio.
Mynd: EPA
Það er barátta um Michail Antonio sem er að jafna sig eftir skelfilegt bílslys.

Hann er í viðræðum við Charlton sem leikur í næst efstu deild Englands og þá hefur Al?Sailiya í Katar sýnt honum áhuga.

Antonio, sem er 35 ára gamall, er án félags eftir að hann yfirgaf West Ham þegar samningur hans rann út síðasta sumar.

Hann lenti í hræðilegu bílslysi í desember 2024 en hefur náð bata og er að æfa núna á æfingasvæði Charlton.

Antonio er núna í viðræðum við þessi tvö félög og má búast við niðurstöðu fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner