Þróttur R. 0 - 1 ÍBV
0-1 Gonzalo Zamorano Leon ('38)
0-1 Gonzalo Zamorano Leon ('38)
Gonzalo Zamorano gerði eina mark leiksins er ÍBV lagði Þrótt R. að velli í Laugardalnum.
Gonzalo skoraði markið seint í fyrri hálfleik og tókst hvorugu liði að breyta stöðunni eftir leikhlé.
Liðin mættust í botnslag í síðustu umferð riðlakeppni A-deildar Lengjubikarsins.
ÍBV lýkur því keppni með sex stig eftir fimm umferðir. Þróttur endar með þrjú stig.
Gonzalo er fæddur 1995 og var meðal bestu leikmanna Lengjudeildarinnar í fyrra þar sem hann skoraði 11 mörk í 20 leikjum með Víkingi Ólafsvík. Hann var besti leikmaðurinn á Ólafsvík og var fenginn til ÍBV sem ætlar sér aftur upp í efstu deild.
Athugasemdir