Með Elmari á myndinni eru Karl Maack, nýr formaður meistaraflokksráðs karla, og Magnús Már Einarsson, þjálfari meistaraflokks karla. Karl Maack tók við af Gísla Elvari á dögunum en Gísli situr áfram í stjórn mfl kk.
Það voru berast frábær tíðindi til stuðningsmanna Aftureldingar því Elmar Kári Enesson Cogic hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu út tímabilið 2027.
Fyrri samningur hefði runnið út eftir komandi tímabil. Elmar Kári (2002) lék frábærlega í Lengjudeildinni 2023 og 2024 og reyndi ÍA að kaupa hann af grönnum sínum í vetur. Meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili og náði Elmar ekki að sýna sitt besta í Bestu deildinni.

Úr tilkynningu Aftureldingar
Elmar Kári hefur spilað með Aftureldingu allan sinn feril og undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liðinu.
Elmar spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með Aftureldingu árið 2020 en síðan þá hefur hann skorað 46 mörk í 120 deildar og bikarleikjum auk þess að leggja upp fjölda marka. Elmar var í liði ársins í Lengjudeildinni bæði 2023 og 2024 en síðarnefnda árið hjálpaði hann Aftureldingu upp í Bestu deildina í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Afturelding fagnar því að Elmar hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann áfram í eldlínunni í Mosfellsbæ í sumar!
Athugasemdir