Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 14. maí 2026 18:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA er úr leik í Mjólkurbikarnum eftir tap gegn Ægi í 16-liða úrslitum í dag. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Ægir

„Ég vil byrja á því að óska Ægi til hamingju með að vera komnir áfram, þeir áttu það skilið. Þeir mættu klárir í leikinn og við nenntum ekki að leggja í þá vinnu sem þarf. Við héldum að þetta yrði auðvelt og það er orðið 2-0 snemma og það er erfitt að komast upp úr því," sagði Haddi.

„Við náum aðeins að kveikja á okkur en það er orðið of seint. Við áttum ekki skilið að fara áfram þó við hefðum skotið helvíti oft í stöng og slá og verið í dauðafærum, ef þú leggur þig ekki fram þá áttu yfirleitt ekki skilið að fara áfram."

Haddi var ekki sáttur með frammistöðu liðsins en hann tók Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson af velli í hálfleik.

„Mér fannst þeir ekki standa sig nógu vel ásamt fleirum. En seinni hálfleikur var betri og við hefðum getað skorað fjögur mörk en því miður fór það ekki inn. Ef þú mætir með svona hugarfar þá detta hlutirnir ekki með þér," sagði Haddi.
Slapp
banner
banner