Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 14. maí 2026 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Mynd: Ægir
Ægir, sem spilar í Lengjudeildinni, tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag með sigri á Bestu deildarliði KA á Akureyri í dag.

Fótbolti.net ræddi við Ómar Castaldo Einarsson, markvörð Ægis, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Ægir

„Þetta er mjög góð tilfinning. Við komum inn í þennan leik og vissum að pressan yrði á þeim eins og þeir eru búnir að byrja deildina. Við komum inn með enga pressu og vildum spila fótbolta. Það virkaði helvíti vel," sagði Ómar.

„Þeir skora eitt skítamark, Dabbi rann klaufalega, það getur gerst. Mér leið eins og þeir væru aldrei að fara skora í seinni þó svo að þeir væru að ógna en það virkaði og mér fannst við alltaf vera með yfirhöndina og stjórn á leiknum."

Ægir er án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar í deildinni. Þetta var góður sigur fyrir félagið og Ómar sem var á mála hjá Þór sumarið 2023.

„Þetta er risasigur fyrir klúbbinn. Við erum búnir að byrja tímabilið illa í Lengjudeildinni, vonandi gefur þetta okkur sjálfstraust inn í komandi leiki," sagði Ómar.

„Það var nóg að gera og maður hefur gaman af þessu. Maður vill spila þessa leiki sem skipta extra meira máli. Maður var nátturulega í Þór, maður er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA."

Ómar vonaðist til að fá heimaleik í 8-liða úrslitum. Hann fékk ósk sína uppfyllta þar sem liðið fær Breiðablik í heimsókn.
Slapp
banner
banner