Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   fim 14. maí 2026 18:14
Viktor Ingi Valgarðsson
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis
Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Síðasta leik 16-liða úrslita lauk í dag. Þar mættust Lengjudeildarlið Fylkis og Bestu Deildar lið FH. Lokaniðurstaða var sannfærandi sigur Fylkis 5-0 á FH.

Heimir Guðjóns á móti sínu gamla félagi, vinnur og kemur Fylkir áfram í 8-liða úrslit  Mjólkurbikarins sem fara fram í byrjun Júní.


Lestu um leikinn: Fylkir 5 -  0 FH

Það var um nóg af frammistöðum að velja fyrir mannleiksins en vallarþulur tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri einfaldlega maður leiksins „Það er geggjað að vera maður leiksins í Árbænum, því maður fær að borða hjá Fiskfélaginu og það er geggjaður matur. Þannig ég hlakka til."

„En leikurinn var góður af okkar hálfu. Komum sterkir út í byrjun og heilt yfir fín frammistaða."

Fylkir var 3-0 yfir í hálfleik en þeir voru ekkert að koma í seinni hálfleik eins og þeir voru búnir að vinna, heldur bættu þeir í og 5-0 staðan eftir 55.mínútuna leik.

„Það kom mér á óvart að Flóki og Tobias skildu ekki byrjan, en held að FH sé ekki á þeim stað sem þeir hefðu vonast að vera á í deildinni."

Fylkir komnir áfram í 8-liða úrslit eins og nefnt var hér áður en framundan er leikur gegn ÍR í Lengjudeildinni.

„Bara önnur keppni, stóðum okkur vel í þessum leik. Nú er bara að æfa á morgun og hugsa um ÍR, erfiður andstæðingur, vel skipulagðir og með gott lið. Getum auðvitað leyft okkur aðeins að fagna."

Að lokum hafði Heimir nokkur orð um byrjun tímabilsins að segja.

„Fyrstu tveir leikirnir í deildinni voru fínir, svo kom smá högg gegn Njarðvík. Vorum ekki góðir og fannst við ekki mikið reyna þannig það er fínt að fá það tilbaka í dag. Lærðum af því og höldum áfram."

Spurður hvort hann ætti eitthvað óskalið í 8-liða leiknum sagði Heimir: „Nei, ég vil bara fá heimaleik. Stuðningsmennirnir geggjaðir og frábær stemning, styðja vel við bakið á liðinu sínu. Þannig það er óskin."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan 


Slapp
banner