Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 27. febrúar 2026 09:20
Elvar Geir Magnússon
Wirtz ekki með gegn West Ham - „Þurfum að vinna fullt af leikjum“
Wirtz hefur spilað virkilega vel að undanförnu.
Wirtz hefur spilað virkilega vel að undanförnu.
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
Liverpool fær West Ham í heimsókn á Anfield á morgun klukkan 15:00. Arne Slot, stjóri Liverpool, mætti á fréttamannafund í morgunsárið og greindi frá því að Jeremie Frimpong væri klár í leikinn en Florian Wirtz yrði líklega ekki með.

Wirtz meiddist í upphitun fyrir sigurinn nauma gegn Nottingham Forest og segist Slot ekki vita hversu lengi hann verði frá.

„Á þessari stundu veit ég það ekki. Stundum segi ég það þegar ég vil ekki gefa neitt upp en í hreinskilni þá veit ég það ekki í þetta sinn," segir Slot.

„Það er svekkjandi fyrir hann og fyrir okkur að hann geti ekki spilað. Hann hefur verið að spila virkilega vel síðustu vikur."

Hörð samkeppni um Meistaradeildarsætin
Liverpool er sem stendur í sjötta sæti, og er í harðri baráttu um að komast í Meistaradeildina.

Fótbolti.net var með skoðanakönnun á forsíðu um hvort Liverpool myndi landa Meistaradeildarsæti og skiptust akvæðin nánast hnífjafnt í 50/50 milli já og nei.

„Eins og stjórar segja alltaf þá erum við aðallega að hugsa um okkur sjálfa en ekki önnur lið. Við vitum að við þurfum að vinna fullt af leikjum því það eru mjög góð lið að keppa um Meistaradeildarsætin. Okkar einbeiting er á að vinna marga leiki," segir Slot.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner