Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna
Niðurtalningin - Ekki meiri Forsetabikar
Fótbolta nördinn - 433 vs RÚV
Niðurtalningin - Er verið að vanmeta Framara?
Niðurtalningin - Horft fram á við með Magga Hödd og Frikka Dór
Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum!
Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
   þri 29. apríl 2014 16:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upptaka - FH-ingarnir Óli Palli og Emil Páls í heimsókn
Emil Pálsson hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu.
Emil Pálsson hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Tveir leikmenn FH heimsóttu útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu síðasta laugardag en í spilaranum hér að ofan má heyra spjallið við þá. Fyrirliðinn Ólafur Páll Snorrason og Emil Pálsson mættu í gasklefann.

FH hefur leikið vel í vor og vann úrslitaleik Lengjubikarsins á föstudag.

„Við höfum fundið það alveg sjálfir síðustu vikur eftir að við komum að utan að við höfum verið að spila mjög vel. Þetta er kannski aðeins öðruvísi en við höfum gert síðustu ár þar sem við höfum dottið út í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins. Nú var annað uppi á teningnum, við erum að spila töluvert betur en við höfum verið að gera síðustu tvö til þrjú ár á þessum tíma," segir Ólafur Páll.

Vonandi næ ég að springa út í sumar
Emil hefur verið frábær á þessu undirbúningstímabili og verður spennandi að sjá hvernig hann mun standa sig í Pepsi-deildinni.

„Ég er búinn að þroskast mikið sem leikmaður að mínu mati. Svo fór Björn Daníel (Sverrisson) og þá skapaðist ákveðið pláss á miðjunni sem mér finnst ég hafa nýtt mér vel á undirbúningstímabilinu. Vonandi næ ég að fylgja því eftir. Það er ekkert gaman að vera góður á undirbúningstímabilinu en geta ekkert í deildinni sjálfri," segir Emil.

„Þetta er fjórða tímabilið mitt í FH sem er að byrja núna. Vonandi næ ég að springa aðeins út í sumar og skora aðeins meira en ég hef verið að gera."

Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þar er meðal annars rætt um úrslitaleik Lengjubikarsins, Evrópuframmistöðuna í fyrra, frammistöðu einstakra leikmanna og auglýsinguna með Hödda Magg.
Slapp
Athugasemdir
banner