Það vakti athygli þegar Steven Caulker, fyrrum leikmaður Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, var mættur meðal áhorfenda á Samsungvellinum í Garðabæ í gærkvöldi.
Caulker horfði á Stjörnuna sigra 4-2 gegn KR í skemmtilegum leik í Bestu deildinni en mögulegt er að þessi öflugi miðvörður sé að ganga í raðir Garðbæinga.
Caulker er 33 ára gamall og gerði fína hluti í B-deild tyrkneska boltans á síðustu leiktíð.
„Við erum búnir að vera að tala við hann um alskonar núna í einhvern tíma og það er ekkert klárt eða frágengið í þeim efnum. Hann vildi bara fá að koma, sjá og skoða," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, þegar hann var spurður út í Caulker eftir sigurinn.
„Ég sagði honum að hann mætti eiga von á mjög skemmtilegum og áhugaverðum fótboltaleik og tel mig hafa staðið við það loforð."
Stjarnan hefur verið í sambandi við Caulker síðan í fyrra en þá valdi hann að spila frekar í Tyrklandi og náði heilu tímabili þar án vandræða.
Sjáðu viðtalið í heild - Caulker er ræddur eftir 2:30.
Athugasemdir