Ruben Amorim, stjóri Manchester United, sýndi kostuleg viðbrögð á blaðamannafundi United í Asíu-ferð félagsins.
Amorim og Amad Diallo, leikmaður Man Utd, ræddu við fjölmiðlamenn og spurði einn blaðamaðurinn Diallo að því hvort hann vonaðist til þess að Garnacho yrði áfram hjá félaginu.
Stjórinn gat ekki stillt sig og fór að hlæja, en það hefur verið rætt og ritað um framtíð Garnacho síðustu daga.
Samkvæmt Daily Mail átti Amorim að hafa hraunað yfir Garnacho á liðsfundi og sagt honum að leggjast á bæn um að eitthvað félagið vilji fá hann í sumar.
Garnacho á ekki framtíð hjá United og verður þessi Asíu-ferð hans síðasta verkefni með liðinu.
Viðbrögð Amorim má sjá í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Athugasemdir