
Frederik Schram hefur varið mark Vals í síðustu leikjum og náði að halda markinu hreinu í síðasta leik.
Það heyrðist vel á Srdjan Tufegdzic, þjálfara Vals, eftir síðasta leik að hann var hæstánægður með að liðið hans náði að halda hreinu. Það var í fyrsta sinn, í keppnisleik, sem liðið náði að halda hreinu frá því að Túfa tók við því í ágúst í fyrra.
Hans fyrstu viðbrögð við 3-0 sigri gegn ÍBV voru þau að aðalmarkmiðið hefði verið að halda markinu hreinu.
Hann ræddi við Fótbolta.net í dag og var hann spurður út í ummælin.
Hans fyrstu viðbrögð við 3-0 sigri gegn ÍBV voru þau að aðalmarkmiðið hefði verið að halda markinu hreinu.
Hann ræddi við Fótbolta.net í dag og var hann spurður út í ummælin.
„Ég verð að vera hreinskilinn, ég hef aldrei upplifað þetta áður á mínum þjálfaraferli. Yfirleitt heldur liðið mitt hreinu í fullt af leikjum, svo þetta var öðruvísi áskorun og verið í langan tíma. Ég var búinn að vera svekktur af því við höfðum lagt mikla vinnu í að bæta varnarleikinn. Varnarleikurinn í heild sinni er búinn að vera miklu betri í ár heldur en í fyrra, það hefur verið svekkjandi að við náðum ekki að komast í gegnum erfiðu kaflana í leikjunum, sem öll lið fara i gegnum, án þess að fá á okkur mark," segir Túfa sem hafði áður þjálfað lið Skövde og Öster í Svíþjóð, þar á undan var hann aðstoðarþjálfari Vals. Hans fyrstu þjálfarastörf á ferlinum voru hjá KA og svo var hann þjálfari Grindavíkur.
„Þetta var búið að sitja mikið í mér, ég er skipulagður þjálfari og liðið er búið að vera vel skipulagt, það hefur ekki vantað. Okkar mesta verkefni var, og verður áfram, að þegar það koma kaflar í leikjum þar sem þú strögglar aðeins og hitt liðið gerir vel - þá þarftu að ná stöðugleika í því að komast í gegnum þá án þess að þér sé refsað."
Vantað upp á herslumuninn
Valsliðið hefur heilt yfir, ef frá er talinn leikurinn gegn FH, leikið vel á tímabilinu. Liðið spilaði vel gegn Breiðabliki en náði ekki að taka stig og fylgdi svo á eftir því með mjög sannfærandi sigri gegn ÍBV.
Þetta er rosalega nálægt því að vera mjög gott tímabil til þessa hjá Val, má ekki segja það?
„Ég er sammála því. Það sem okkur hefur vantað eru nokkur prósent. Ef horft er í leikina tíu í báðum keppnum þá finnst mér við hafa verið mjög flottir og öll tölfræði sýnir það. Við höfum haldið boltanum mjög vel, höfum skapað fullt á færum og erum með nokkuð góða stjórn á leikjunum."
„Þrátt fyrir tap gegn Breiðabliki var hluti af leiknum þar sem við vorum mjög flottir og það eru ekki mörg lið sem fara á Kópavogsvöll sem ýta Blikunum í það að sparka boltanum í innkast eftir pressu. Við náðum á köflum að stjórna leiknum vel og skapa færi, það er bara herslumunur þar sem hefur vantað upp á í nokkrum leikjum. Það er munurinn á 12 stigum eða 16-17 eins og toppliðin."
„Við erum að leggja hart að okkur. Til þess að vera sigurlið, vinna marga leiki í röð, þá þarftu að ná þessum lokaprósentum þín megin, klára leiki þegar við náum að skora eitt mark, og svo að komast í gegnum erfiðu kaflana hinu megin. Við erum að vinna mikið í því og ég hef mikla trú á að við náum að komast á þann stað, þá verður þetta mjög gott," segir Túfa.
Valur heimsækir Aftureldingu í Mosfellsbæ í níundu umferð Bestu deildarinnar á morgun. Leikurinn hefst klukkan 16:15 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá.
Athugasemdir