Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 13:11
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarlið Vestra og Víkings: Silas inn fyrir Daða sem situr í stúkunni
Gylfi á bekknum hjá Víkingum
Silas fyllir skarð Daða Berg í liði Vestra
Silas fyllir skarð Daða Berg í liði Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi er á varamannabekk Víkinga
Gylfi er á varamannabekk Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Vestri tekur á móti Víkingum á Kerecisvellinum á Ísafirði en flautað verður til leiks klukkan 14:00. Um toppslag er að ræða en þarna mætast liðin í fyrsta og þriðja sæti deildarinnar og verður toppsæti deildarinnar sigurvegarans í það minnsta um stund.

Lestu um leikinn: Vestri 0 -  1 Víkingur R.

Hjá Vestra er Daði Berg Jónsson fjarverandi en hann er á láni frá Víkingum. Inn í lið Vestra í hans stað frá 3-1 sigrinum gegn Stjörnunni kemur Silas Songani.

Margar breytingar hjá Víkingum og Gylfi á bekknum
Víkingar gera þó nokrrar breytingar frá 2-1 sigrinum gegn ÍA. Sveinn Gísli Þorkelsson, Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson Gylfi Sigurðsson og Stígur Diljan Þórðarson detta úr byrjunarliði þeirra. Inn í þeirra stað koma Viktor Örlygur Andrason, Davíð Örn Atlason. Ali Basem Almosawa og Matthías Vilhjálmsson.

Byrjunarlið Vestra:
12. Guy Smit (m)
3. Anton Kralj
4. Fatai Gbadamosi
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
7. Vladimir Tufegdzic
10. Diego Montiel
23. Silas Songani
28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
40. Gustav Kjeldsen

Byrjunarlið Víkinga:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
11. Daníel Hafsteinsson
12. Ali Basem Almosawe
20. Tarik Ibrahimagic
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
25. Valdimar Þór Ingimundarson
27. Matthías Vilhjálmsson
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir