Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
banner
   fim 29. maí 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjóri Guðlaugs Victors á förum
Miron Muslic á Kópavogsvelli
Miron Muslic á Kópavogsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Schalke er í viðræðum við Miron Muslic, stjóra Plymouth, en honum tókst ekki að halda enska liðinu uppi í Championship deildinni. Guðlaugur Victor Pálsson er leikmaður Plymouth.

Muslic er fyrrum stjóri Cercle Brugge en hann stýrði liðinu þegar liðið tapaði 3-1 gegn Víkingi á Kópavogsvelli í Sambandsdeildinni.

Plymouth reyndi að halda honum en hann gerði þeim ljóst fyrir að hann vildi fara til að vera nær fjölskyldunni eftir að hafa þjálfað erlendis undanfarin fjögur ár.

Hull, Köln og Hannover voru einnig áhugasöm um að ráða hann en útlit er fyrir að hann muni enda hjá Schalke sem endaði í 14. sæti í næst efstu deild í Þýskalandi á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir