Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 12:39
Brynjar Ingi Erluson
Delap vill aðeins fara til Chelsea - Hafnaði Man Utd og fimm öðrum félögum
Mynd: EPA
Liam Delap, sóknarmaður Ipswich Town, er á leið til Chelsea en þetta kemur fram á Athletic í dag.

Delap, sem er 22 ára gamall, er einn heitasti biti markaðarins eftir gott tímabil hans með Ipswich.

Vissulega féll liðið aftur niður í B-deildina en Delap var framúrskarandi með 12 mörk í 37 deildarleikjum.

Athletic hefur greint frá áhuga fjölda félaga á Delap, en hann hefur nú formlega tilkynnt AC Milan, Everton, Juventus, Manchester United, Newcastle United og Nottingham Forest að hann muni ekki semja við þau.

Englendingurinn hefur mestan áhuga á að ganga í raðir Chelsea, en skiptin eru ekki klár enn. Hann á eftir að samkomulagi um kaup og kjör og þá hefur félagið ekki virkjað kaupákvæði í samningi hans.

Það verður væntanlega gengið frá því á næstu dögum og allt útlit fyrir að hann sé á leið til Chelsea.
Athugasemdir
banner