Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   mið 28. maí 2025 23:38
Snæbjört Pálsdóttir
Gylfi Tryggva: Þetta eru ótrúlegir karakterar í þessu liði
Kvenaboltinn Lengjudeildin
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík
Mynd: UMFN

Grindavík/Njarðvík vann góðan 1-2 sigur á Haukum í kvöld á BIRTU vellinum.

Spurður um fyrstu viðbrögð eftir leik svaraði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík: "Þau eru bara smá spennufall eiginlega. Þetta var ótrúlegur leikur, veit eiginlega ekki hvað ég á að segja eftir þetta."

"Ekki sáttur með frammistöðuna í fyrri hálfleik og bara drullusáttur með frammistöðuna í seinni hálfleik, fannst við bara tvö ólík lið sko, vorum mjög ólíkar sjálfum okkur í byrjun. En þeir sem þekkja þetta lið, þetta hefur ekki komið þeim á óvart, held ég að þær hafi náð að snúa þessu við. Þetta eru ótrúlegir karakterar í þessu liði og bara get ekki hrósað þeim nógu mikið fyrir það hvernig þær ná alltaf að snúa þessu við sama hvernig mótlætið er og hérna hvers kyns það er, bara hérna halda þær áfram, keyra á þetta, setja í næsta gír og bara ánægður að hafa klárað leikinn."


Lestu um leikinn: Haukar 1 -  2 Grindavík/Njarðvík

Þetta var annar endurkomusigur Grindavík/Njarðvíkur í röð en í síðustu umferð unnu þær Gróttu 3-2 eftir að hafa lent undir 0-2 . 

"Ég vona bara að mín vegna að það verði ekki það sem koma skal að við séum alltaf að fara að vera í einhverjum tilfinningarússíbana, þetta er óþæginlegt sko, þetta er gaman stundum en þetta er helvíti óþægilegt ef þetta á að vera svona til lengdar, ég vona að þær séu ekki að fara láta okkur ganga í gegnum það á hliðarlínunni"

Næsti leikur hjá Grindavík/Njarðvík verður gegn KR á JBÓ vellinum, 5. júní nk. kl. 19:15.

"KR er ótrúlega sterkt lið, mér finnst þær rosalega bara vanmetnar, sigla undir radarinn og hafa fengið að gera það núna í allan vetur, þetta er ótrúlega gott lið og þeirra byrjun á mótinu kemur ekkert á óvart."

"Þær skoruðu sjö á móti okkur í síðasta leik, ég ætla að vona að það endurtaki sig ekki frá því í Lengjubikar."

"Við bara fögnum í kvöld og svo bara setjumst við niður á morgunn og skoðum hvernig við fáum ekki á okkur sjö mörk í næsta leik á móti þeim."

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner