Klukkan 14:00 tekur Vestri á móti Víkingi í toppslag Bestu deildarinnar, um leik í níundu umferð deildarinnar er að ræða.
Aron Elís Þrándarson og Pablo Punyed glíma við langtímameiðsli hjá Víkngum en það styttist í að El Salvadorinn snúi aftur á völlinn eftir krossbandsslit.
Sveinn Gísli Þorkelsson verður þá ekki með í dag þar sem hann meiddist í síðasta leik.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í gær.

Lestu um leikinn: Vestri 0 - 1 Víkingur R.
„Það eru ekki margir meiddir, það eru allir frískir nema náttúrulega Aron Elís og Pablo, Pablo er alltaf að færast nær og nær."
„Sveinn Gísli fékk einhver eymsli í síðasta leik, smávægileg tognun, en hann lítur alveg ágætlega út. Hann verður ekki með gegn Vestra en vonandi stutt í hann," segir Sölvi Geir.
Atli Þór fór í sprautu
Framherjinn Atli Þór Jónasson, sem Víkingur keypti frá HK í vetur, var ekki í leikmannahópnum gegn ÍA en gæti verið með í dag.
„Hann fór í sprautu um daginn, var að jafna sig á því og er orðinn klár aftur. Það er bara reglur sem unnið er eftir með það að menn hvíli í 5-7 daga eftir sprautu, þegar hún byrjar að virka almennilega þá máttu byrja að hreyfa þig. Hann hefur æft með okkur síðustu 3-4 æfingar. Hann gat hreyft sig á efri líkama með sprautunni, er í góðu standi. Hann er 100% klár í þennan leik."
Pablo farinn að brosa meira
Er komin einhver dagsetning á Pablo þar sem hann gæti verið í hóp?
„Það er ekki komin nein dagsetning á það, það er að styttast mjög í það. Við horfum í júní, mögulega eftir landsleikina eða í enda júní. Það styttist óðfluga í það, hann er byrjaður að vera með á æfingum og það er mjög ánægjulegt að sjá hann aftur. Hann brosir meira þessa dagana allavega," segir Sölvi.
Athugasemdir