

„Tilfinningin er bara geggjuð. Ég held hún gæti ekki verið betri,'' segir Rebekka Sif Brynjarsdóttir, leikmaður Gróttu, eftir 2-1 sigur gegn ÍA í 5. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 1 ÍA
Rebekka er fædd 2009 og tók vítið sem Grótta fékk á lokamínútum leiksins.
„Ég er mjög ánægð með að hafa skorað síðasta markið á loka sekúndu. Ég ákvað bara að taka boltann og ég eiginlega hugsaði bara ekkert. Ég sleppti að hugsa um stressið og hugsaði bara að ég ætlaði að skjóta í boltann.''
„Þetta var skemmtilegt og við fengum snemma mark í byrjun, en mér fannst að við náðum að bara halda stemningunni uppi og ekki verða neikvæðar, vera jákvæðar í staðinn.''
Grótta var komin í næst neðsta sæti deildarinnar en þessu sigur kom þeim upp í 5. sæti. Rebekka var spurð hvort þessi sigur hafi ekki jákvæð áhirf á mannskapinn.
„Jú alltaf. Þetta hjálpar okkur mjög mikið.''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.