
Á morgun spilar Ísland við Noreg í Þjóðadeildinni og svo nokkrum dögum síðar er komið að heimaleik gegn Frakklandi. Þetta er síðasta verkefnið hjá stelpunum okkar áður en komið er að Evrópumótinu í Sviss.
En hvernig er staðan á leikmannahópnum fyrir þetta áhugaverða verkefni? Skoðum það aðeins. Þess ber að geta að Emilia Kiær Ásgeirsdóttir og Amanda Andradóttir drógu sig út vegna meiðsla. Inn fyrir þær komu Arna Eiríksdóttir og Fanndís Friðriksdóttir.
En hvernig er staðan á leikmannahópnum fyrir þetta áhugaverða verkefni? Skoðum það aðeins. Þess ber að geta að Emilia Kiær Ásgeirsdóttir og Amanda Andradóttir drógu sig út vegna meiðsla. Inn fyrir þær komu Arna Eiríksdóttir og Fanndís Friðriksdóttir.
Markverðir:
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik
Telma sneri á dögunum aftur heim í Breiðablik eftir stutta dvöl hjá Rangers í Skotlandi. Hún spilaði ekki með Rangers og var lánuð heim í Kópavoginn þar sem hún hefur spilað fjóra leiki í Bestu deildinni í sumar. Hún talaði um það í viðtali á dögunum að það hefði verið best fyrir sig að koma heim og spila fyrir EM í sumar, en gera má ráð fyrir því að hún verði þriðji markvörður Íslands þar.
Fanney Inga Birkisdóttir - BK Häcken
Fanney gekk á síðasta ári í raðir Häcken í Svíþjóð eftir að hafa leikið mjög vel með Val hér heima. Þessi tvítugi markvörður hefur spilað einn deildarleik fyrir Häcken eftir komu sína þangað og þrjá bikarleiki. Þetta hafa allt verið sigurleikir. Hún var byrjunarliðsmarkvörður Íslands á síðasta ári en virðist núna vera númer tvö í röðinni á eftir Cecilíu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan
Er aðalmarkvörður Íslands í dag eftir að hafa átt frábært tímabil á Ítalíu með Inter. Þar var hún á láni frá Bayern München, en hún var valin markvörður ársins í ítalska boltanum. Inter er að reyna að kaupa hana en það er óvíst hvað gerist. Hún virðist ekki eiga að vera aðalmarkvörður Bayern á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa leikið ótrúlega vel í vetur, og það er spurning hvað gerist. Eins og staðan er í dag, þá verður hún aðalmarkvörður Íslands á EM í sumar.
Varnarmenn:
Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF
Skipti yfir til sænska félagsins Kristianstad í fyrra eftir að hafa leikið með AC Milan og Napoli á Ítalíu. Framlengdi nýverið samning sinn við Kristianstad og sagði hún þá að það væri besti staðurinn fyrir sig til að halda áfram að vaxa og verða enn betri. Hefur byrjað fimm af níu deildarleikjum Kristianstad á tímabilinu.
Ingibjörg Sigurðardóttir - Bröndby
Var með fyrirliðabandið í síðasta landsliðsglugga þar sem Glódís Perla var meidd. Hefur verið í mjög stóru hlutverki með danska félaginu Bröndby eftir að hún skipti þangað. Er að byrja alla leiki fyrir liðið sem er í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich
Okkar besti leikmaður hefur verið að glíma við meiðsli og það skapaðist óvissa um það fyrir nokkru hvort hún gæti verið með á EM, en hún er mætt aftur í hópinn sem eru frábær tíðindi. Er fyrirliði Bayern München sem vann tvöfalt í Þýskalandi á nýafstöðnu tímabili. Byrjaði síðast leik 11. maí og er vonandi á góðum stað. Við fáum að vita það betur í dag.
Guðrún Arnardóttir - FC Rosengard
Guðrún hefur verið lykilmaður fyrir sænsku meistarana í Rosengård í nokkur ár núna. Á þessu tímabili hefur hún byrjað átta af níu leikjum fyrir liðið sem hefur verið í nokkrum vandræðum, en Rosengård situr núna í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Samningur Guðrúnar er að renna út og það eru góðar líkur á því að hún taki stökkið í sterkari deild en hún hefur verið einn besti miðvörður sænsku deildarinnar í dágóðan tíma.
Natasha Moraa Anasi - Valur
Natasha er algjör lykilmaður fyrir Valslið sem hefur verið að ströggla í upphafi Bestu deildarinnar. Hún hefur spilað hverja einustu mínútu í hjarta varnarinnar hjá Val það sem af er tímabili og er þar einn mikilvægasti leikmaðurinn. Getur leyst nokkrar stöður en er yfirleitt alltaf í miðverði hjá Val.
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Vålerenga
Vinstri bakvörðurinn efnilegi er á sínu öðru tímabili í atvinnumennsku en á fyrsta tímabilinu varð hún norskur meistari með Vålerenga. Hefur núna komið við sögu í öllum deildarleikjum Vålerenga sem er í öðru sæti norsku deildarinnar, tveimur stigum á eftir Rosenborg. Hún hefur byrjað tíu af ellefum leikjum og er mikilvægur partur af sterku liði.
Arna Eiríksdóttir - FH
Hefur byrjað fótboltasumarið stórkostlega í Kaplakrika. Líklega búin að vera besti varnarmaður Bestu deildarinnar það sem af er sumri og er heldur betur búin að stimpla sig inn í myndina fyrir EM. Lék magnaðan leik fyrir FH gegn Breiðabliki á dögunum og fékk verðskuldað kallið upp í landsliðið.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir - Breiðablik
Verður ekki með gegn Noregi þar sem hún er að útskrifast úr Harvard. Ekki eitthvað sem maður gerir á hverjum degi það. Hún verður með gegn Frakklandi samt. Áslaug Munda verður 24 ára í næstu viku og á að baki 20 A-landsleiki. Hún hefur verið mikið frá síðustu ár vegna höfuðmeiðsla. Hefur spilað þrjá leiki með Breiðabliki í sumar og var þar áður að gera góða hluti með skólaliði Harvard. Getur bæði leyst það að spila í bakverði og á kanti.
Miðjumenn:
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF
Skipti yfir í Íslendingafélag Kristianstad fyrir yfirstandandi tímabili eftir að hafa verið hjá Fiorentina á Ítalíu. Þessi harðjaxl úr Hafnarfirði hefur nánast spilað hverja einustu mínútu fyrir Kristianstad og er búin að skora tvö mörk í sænsku úrvalsdeildinni. Virðast hafa verið góð skipti svona stuttu fyrir EM.
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur
Eins og Natasha, þá er Berglind lykilmaður fyrir Valslið sem er að ströggla. Berglind hefur verið að glíma við meiðsli í upphafi tímabilsins í Bestu deildinni og kannski ekki náð upp neinum rosalegum takti í sinn leik það sem af er. Hefur spilað fjóra leiki í Bestu deildinni en það er gríðarlega mikilvægt fyrir Val að hún sé í góðum gír.
Katla Tryggvadóttir - Kristianstads DFF
Þrátt fyrir að vera ung að árum og þrátt fyrir að vera bara á sínu öðru tímabili hjá félaginu, þá hefur Katla haft gríðarleg áhrif hjá Kristianstad. Hún lék mjög vel á síðasta tímabili og var fyrir núverandi leiktíð gerð að fyrirliða. Hún hefur haldið sama dampi og er búin að gera þrjú mörk í átta leikjum í sænsku úrvalsdeildinni. Einn okkar allra efnilegasti leikmaður sem gæti verið á leið á sitt fyrsta stórmót.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Leverkusen
Karólína Lea, sem skoraði þrennu í síðasta landsliðsglugga, var að kveðja Leverkusen eftir að hafa leikið þar í tvö tímabil á láni frá Bayern München. Hún spilaði alla 22 leikina með Leverkusen í þýsku deildinni og skoraði tvö mörk á tímabilinu sem var að klárast. Núna er spurning hvað Karólína gerir, hvort hún færi sig um set í sumar. Hún er einn af okkar hæfileikaríkustu leikmönnum; á því er enginn vafi.
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham
Það er ekki svo langt síðan Dagný kom til baka eftir að hafa eignast sitt annað barn. Hún spilaði 18 deildarleiki með West Ham á Englandi í vetur en byrjaði aðeins fjóra þeirra. Hún hefur að undanförnu verið orðuð við heimkomu og spurning hvort við sjáum hana í Bestu deildinni síðar í sumar. Það er virkilega flott að fá hana aftur í landsliðið þar sem hún kemur inn með mikla reynslu.
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF
Hildur var í nokkuð stóru hlutverki hjá Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í vetur þar sem hún spilaði 23 leiki af 30. Þar af byrjaði hún 18 þeirra, en meiðsli settu eitthvað strik í reikninginn. Hún skoraði eitt mark fyrir liðið sem endaði um miðja deild. Hildur hefur komið sterk inn í landsliðið og gæti verið á leið á sitt fyrsta stórmót í sumar.
Framherjar:
Sandra María Jessen - Þór/KA
Markadrottningin fór svolítið hægt af stað í Bestu deildinni en hefur núna verið þrisvar sinnum í röð í liði umferðarinnar. Henni líður best á kantinum en hún hefur gert sex mörk í síðustu þremur leikjum fyrir þetta landsliðsverkefni.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF
Eins og Ingibjörg, þá er Hafrún Rakel mikilvægur partur af liði Bröndby sem er í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og byrjar hún þar flestalla leiki. Hafrún er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað í bakverði og á kanti.
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City
Það voru stórar fréttir á dögunum þegar tilkynnt var að Sveindís Jane hefði skrifað undir samning hjá Angel City í Bandaríkjunum. Hún mun ganga í raðir félagsins í sumar. Hún spilaði á nýliðnu tímabili með Wolfsburg og var þar mikið að koma inn af bekknum; ekki hlutverk sem hún var ánægð með. Er líklega okkar mikilvægasti leikmaður ásamt Glódísi og Karólínu Leu.
Hlín Eiríksdóttir - Leicester City
Eftir að hafa raðað inn mörkum með Pitea og Kristianstad í Svíþjóð þá fékk Hlín félagaskipti til Leicester á Englandi fyrir stuttu. Hún hefur spilað átta leiki í ensku úrvalsdeildinni en á enn eftir að skora sitt fyrsta mark. Það kemur. Leikmaður sem getur leyst allar fremstu stöðurnar á vellinum.
Fanndís Friðriksdóttir - Valur
Það var skemmtilegt að sjá það í gær að Fanndís hefði verið kölluð inn í landsliðið í fyrsta sinn í fimm ár eftir að Emilía Kiær dró sig úr hópnum vegna meiðsla. Hún er 35 ára kantmaður sem spilar með Val í Bestu deildinni. Hún var um árabil fastamaður í landsliðinu en hefur síðustu ár glímt við meiðsli og sömuleiðis eignast tvö börn. Fanndís hefur leikið mjög vel með Val í sumar og verið þeirra ljósasti punktur. Fanndís spilaði sinn 109. landsleik í mars 2020 á Pinatar og gæti því í komandi leikjum náð sínum 110. landsleik.
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik
Þessi frábæri sóknarleikmaður er mætt aftur í landsliðið eftir eins og hálfs árs fjarveru. Agla María gaf ekki kost á sér í byrjun árs í fyrra og svo sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, í maí á síðasta ári að hann hefði bara ekki valið hana. En núna er hún komin aftur og er í síðasta hópnum áður en sjálfur EM-hópurinn verður valinn. Agla María er einn besti leikmaður Bestu deildarinnar og er fyrirliði Breiðabliks. Í sumar hefur hún skorað fjögur mörk í sjö leikjum í Bestu deildinni, og lagt upp nokkur ofan á það.
Athugasemdir