Hinn 18 ára gamli Asmer Begic hefur skrifað undir nýjan samning við Víking Ólafsvík. Samningurinn er í gildi út tímabilið 2026.
Hann er uppalinn í Ólafsvík og hefur spilað 56 leiki fyrir félagið og skorað í þeim fimm mörk.
Asmer fékk stórt tækifæri í liðinu síðasta sumar þar sem hann lék 21 leik í 2. deild.
Hann hefur komið við sögu í öllum fjórum leikjum liðsins í sumar og skorað eitt mark. Hann innsiglaði 4-1 sigur liðsins gegn KFG. Liðið er með fimm stig í 7. sæti.
Athugasemdir