Níunda umferð Bestu deildar karla hefst í dag með leiks Vestra og Víkings og er því síðasti séns að breyta liðinu í Ford Fantasy leik deildarinnar.
Vestri og Víkingur eigast við á Kerecis-vellinum á Ísafirði klukkan 14:00 og mun markaðurinn loka um það bil mínútu fyrir upphafsflaut.
Fjórir leikir hefjast síðan klukkan 16:15. Nýliðar Aftureldingar taka á móti Val á meðan FH heimsækir ÍBV á Þórsvöllinn í Vestmannaeyjum.
Fram mætir KA og þá spila Blikar við Skagamenn. Klukkan 19:15 loka Stjarnan og KR umferðinnni á Samsung-vellinum í Garðabæ.
Smelltu hér til að taka þátt
Leikir dagsins:
14:00 Vestri-Víkingur R. (Kerecisvöllurinn)
16:15 Afturelding-Valur (Malbikstöðin að Varmá)
16:15 ÍBV-FH (Þórsvöllur Vey)
16:15 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
16:15 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Athugasemdir