Real Betis tapaði í úrslitum Sambandsdeildarinnar gegn Chelsea í kvöld. Betis spilaði mun betur í fyrri hálfleik og var með verðskuldaða forystu en Chelsea liðið kom sterkt út í seinni hálfleik og vann að lokum 4-1.
Real Betis missti því af tækifæri á að næla í fyrsta Evróputitil í sögu félagsins.
Real Betis missti því af tækifæri á að næla í fyrsta Evróputitil í sögu félagsins.
Eftir frábæran fyrri hálfleik varð Betis fyrir áfalli þegar markaskorarinn Abde Ezzalzouli þurfti að fara af velli snemma í seinni hálfleik vegna meiðsla.
„Meiðsli höfðu gríðarlega mikil áhrif á seinni hálfleikinn. Stuðningsfólkið var frábært, það særir mest að færa þeim ekki titilinn, þau áttu það skilið," sagði Manuel Pellegrini, stjóri Betis.
Athugasemdir