Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi og Suarez sáu um Montreal - Svekkjandi tap hjá Degi
Mynd: EPA
Lionel Messi og Luis Suarez fóru hamförum þegar Inter Miami vann kærkominn sigur í MLS deildinni í Bandaríkjunum í nótt.

Liðið fer mjög illa af stað en Miami hafði ekki unnið í fjórum leikjum í röð fyrir leikinn í nótt.

Þeir skoruðu tvö mörk hvor í 4-2 sigri og lögðu upp sitt markið hvor. Þá lagði Sergio Busquets upp fyrsta mark leiksins á Messi.

Dagur Dan Þórhallsson kom inn á 80. mínútu hjá Orlando City gegn Atlanta United. Þá var staðan 2-1 fyrir Orlando sem hafði misst mann af velli á 77. mínútu. Atlanta nýtti sér liðsmuninn og skoraði tvö mörk undir lokin, það seinna seint í uppbótatíma, og unnu 3-2.

Orlando er í 5. sæti Austurdeildar með 27 stig eftir sextán umferðir en Inter Miami er stigi á eftir en liðið hefur spilað fimmtán leiki.
Athugasemdir
banner