
Selma Sól Magnúsdóttir var mætt á Lerkendal í morgun og fylgdist þar með æfingu íslenska kvennalandsliðsins. Stelpurnar okkar mæta Noregi í Þjóðadeildinni á morgun.
Selma Sól er vanalega hluti af leikmannahópnum, og mikilvægur partur af honum, en hún er núna að glíma við meiðsli.
Selma Sól er vanalega hluti af leikmannahópnum, og mikilvægur partur af honum, en hún er núna að glíma við meiðsli.
Selma er leikmaður Rosenborg í Þrándheimi, þar sem leikurinn við Noreg fer fram á morgun. Spilað verður á Lerkendal, heimavelli Rosenborg.
Selma, sem er 27 ára miðjumaður, gekk aftur í raðir Rosenborg í fyrar en hún hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu vegna meiðsla sem eru að plaga hana.
Það styttist í Evrópumótið og það er vonandi að þessi öflugi leikmaður verði orðin heil þegar að því kemur.
Athugasemdir