Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maresca við Antonio: Þú ert of gamall
Mynd: EPA
Chelsea vann Sambandsdeildina í gær með sigri á Real Betis í úrslitum. Enzo Maresca, stjóri Chelsea, var eðlilega í stuði eftir leikinn og sló á létta strengi í viðtali hjá TNT Sports.

Michail Antonio, leikmaður West Ham, var sérfærðingur hjá TNT Sports í gær en hann vann Sambandsdeildina með West Ham árið 2023.

Antonio og Maresca þekkjast vel en sá síðar nefndi var aðstoðarþjálfari Manuel Pellegrini, núverandi stjóra Betis, hjá West Ham frá 2018-2019.

Antonio spurði Maresca hvað markmiðið væri fyrir næsta tímabil. Joe Cole, fyrrum leikmaður Chelsea, greip fram í og sagði: „Ég hélt að þú ætlaðir að spyrja hvort honum vantaði nýjan framherja"

„Já örugglega, en þú ert of gamall," sagði Maresca við Antonio og uppskar hlátur frá Antonio.
Athugasemdir
banner
banner