Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   sun 01. júní 2025 12:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einar Jónsson spáir í 10. umferð Bestu deildarinnar
Einar Jónsson.
Einar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Topp 3 leikmaður í Bestu deildinni.
Topp 3 leikmaður í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stórleikur í kortunum frá Gylfa Sig.
Stórleikur í kortunum frá Gylfa Sig.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslensk Zlatan skorar á Akranesi.
Íslensk Zlatan skorar á Akranesi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski Xavi setur boltann nokkrum sinnum í skeytin í upphitun.
Íslenski Xavi setur boltann nokkrum sinnum í skeytin í upphitun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nær Stjarnan 50 heppnuðum sendingum gegn KA?
Nær Stjarnan 50 heppnuðum sendingum gegn KA?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tíunda umferðin í Bestu deildinni fer að mestu fram í dag, en þá fara fimm leikir fram og þar á meðal er risaleikur Breiðabliks og Víkings. Leikir liðanna síðustu ár hafa verið mjög áhugaverður og rígur myndast milli liðanna.

Umferðinni lýkur svo á morgun þegar Fram heimsækir Val á Hlíðarenda.

Við fengum Íslands- og bikarmeistarann Einar Jónsson, þjálfara karlaliðs Fram í handbolta, til þess að spá í umferðina.

Hann fylgir á eftir Kára Sigfússyni sem náði að setja ný viðmið með því að ná einum leik rétt. Svona spáir Einar leikjunum:

KR 4 - 1 Vestri (14:00, sunnudag)
Hver hefði spáð því að Vestri væri fyrir ofan Stórveldið 1. Júní!

Tveir algjörir fagmenn að stýra þessum liðum. Davið Smári að gera geggjaða hluti. Ég er mikill Óskars maður og hefur hann verið að bjóða upp á mikla markaveislu í sumar, þessi leikur verður engin undantekning og munu KR ingar vinna 4-1 sigur á Vestramönnum. Solid að henda betti á yfir 4.5 mörk!

Aron er topp þrír í þessari deild og setur allavega tvö. Finnur kemur inn og stillir vörnina saman. Halldór verður svo geggjaður í búrinu. Daði skorar alltaf fyrir Vestra, besti ungi leikmaðurimn by a country mile. Ef allt er eðlilegt á hann bara júní eftir í þessari treyju.

KA 1 - 1 Stjarnan (17:00, sunnudag)
Þessi deild er náttúrulega að spilast ótrúlega, það vinna fá lið tvo í röð. Spurning hvort Stjörnumenn nái 50+ heppnaðar sendingar í þessum leik?

Ég sá Norðanmenn vinna mína menn í Dal Draumanna í síðustu umferð. Þeir heilluðu mig ekkert alltof mikið en fundu leið til að fara með stiginn þrjú. Hallgrímur byrjaður að snúa við dæminu hjá KA. Jölli mætir og virðir punktinn frá fyrstu mínútu, kemst yfir í fyrri hálfleik og pönkast aðeins í Hallgrími á leið til búningsherbergja.

Viðar Kjartansson sem skuldar mörk jafnar á 82. mín, 1-1.

FH 2 - 1 Afturelding (18:00, sunnudag)
Eftir gott flug á Fimleikafélaginu þá fór Bátsferð til Eyja illa með þá. Þeir elska sinn heimavöll afar heitt og eru yfirleitt flottir þar.

Þessi leikur öskrar á mig 2-1 hark heimasigur þar sem annar þjálfarinn fær rautt spjald í miklum hitaleik.
Eldingin er aðeins farin að finna fyrir því að félagið er í Bestu og hlutir geta verið fljótir að breytast og súrna hratt, snýst oft um að vinnu réttu leikina. Þeim tekst því miður ekki að vinna þennan.

Mark UMFA kemur úr óvæntri átt Aron Jónsson stangar hann inn eftir hornspyrnu. Úlfur setur annað og Björn Daníel hitt fyrir FH.

ÍA 2 - 2 ÍBV (18:00, sunnudag)
Þessi er smá tvísýnn, spurning hvort maður taki Mikael Nikulásson á þetta og tví- til þrítryggi þennan!

Ef Dean Martin er á stullunum sultuslakur og geymir Jón Þór upp í stúku þá er þetta frekar þéttur heimasigur. En þar sem þetta verður ekki þannig þá ætla ég að segja 2-2. Viktor Jónsson setur bæði mörk heimamanna, hundrað p.

Eyjamenn sakna Omars og Olivers mikið en þeir eiga íslenska Zlatan Sverrir Pál Hjaltested og captein fantastic Alex Frey sem setja sitthvort markið. Sverrir fær svo gult spjald fyrir að rífa sig á kassann.

Breiðablik 2 - 3 Víkingur (19:15, sunnudag)
Heimurinn er ekki tilbúinn í þennan. Þessi mun hafa allt. Ég er á því að Víkingar séu að fara hlaupa með þessa deild. Þetta verður leikurinn hans Gylfa Sig, setur 1 og leggur upp 2. Helgi skorar alltaf í þessum og Danni Hafsteins. Kristófer Ingi og Krulli Gull fyrir Blika.

Ef Helgi Mikael dæmir, þá er þetta 10 spjalda leikur. Þarna mun tíminn stoppa en aðeins um stund.

Kristján Óli lætur svo Dóra Árna heyra það allhressilega eftir leik! Þetta er leikurinn sem Dóri Árna hættir að járna.

Valur 1 - 1 Fram (19:15, mánudagur)
Tekst Val að hefna fyrir handboltann? Nei er stutta svarið.

Valsmenn hafa reyndar verið flottir undanfarið og haldið hreinu í síðustu tveim en Framarar eru með Vuk Oskar og hann skorar alltaf á 90 mín á Hlíðarenda. Patrick Pedersen skorar mark úr efstu hillu.

Rúnar klínir tveim til þrem í skeytin inn í upphitun, sá kóngurinn, hendir svo líka í nokkrar eiginhandaráritanir, hinn íslenski Xavi. Valsmenn verða þó léttir í lund þessir 39 sem mæta frá þeim.

Fyrri spámenn:
Eggert Aron (5 réttir)
Aron Guðmunds (4 réttir)
Atli Barkar (4 réttir)
Maggi Matt (4 réttir)
Eyþór Aron Wöhler (3 réttir)
Þór Llorens (3 réttir)
Halldór Smári (2 réttir)
Fanndís Friðriks (2 réttir)
Kári Sigfússon (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá hvernig staðan er í Bestu deildinni þessa stundina.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner