Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
   sun 30. júní 2013 23:39
Magnús Þór Jónsson
Ejub: Fyrri hálfleikur var eiginlega ekki boðlegur í Pepsideildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ejub var afskaplega ánægður með að vera kominn á sigurbraut.

"Það er vissulega léttir að vera búinn að ná sigri.  Það er oft erfitt þegar þú spilar leik eftir leik og ert ekki verri aðilinn en færð ekkert svo vissulega er það andlega mjög gott."

Ejub var ekki ánægður með gæði fyrri 45 mínútnanna í Ólafsvík.

"Mér fannst fyrri hálfleikur nánast ekki boðlegur í Úrvalsdeildinni! Ég ætla að vera alveg hreinskilinn, þetta var taugastríð og leikmenn þorðu minna að gera.  En seinni hálfleikur og mér fannst við allan tímann vera betri, sérstaklega fram að marki en þá fórum við aðeins að detta niður."

Björn Pálsson spilaði seinni hálfleik haltrandi fyrir málsstaðinn.

"Já, hann fékk smá teip í hálfleik. Hann þarf bara að venjast því vera í Ólafsvík og vera harður af sér" sagði þjálfarinn með feitu glotti.  Kiko Insa var borinn útaf og Ejub hafði áhyggjur af því.

"Hann fékk rosalegt högg og stór kúla komin við hnéð á honum en það er of snemmt að segja til um hvað það er".

Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir fréttinni, m.a. um framhaldið í deildinni.
Slapp
banner
banner