Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
banner
   sun 30. júní 2019 18:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gummi Magg: Fannst dómarinn eyðileggja leikinn
Guðmundur Magnússon.
Guðmundur Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Stjarnan fór til Vestmanneyja og sótti þar 2-0 sigur gegn ÍBV í Pepsi Max-deild karla í dag.

Það gengur ekkert hjá ÍBV þessa daganna. Liðið er á botninum með fimm stig og með -17 í markatölu.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Stjarnan

Guðmundur Magnússon, framherji ÍBV, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn. Hvað var það sem fór úrskeiðis?

„Við skorum ekki mark. Mér fannst dómarinn eyðileggja leikinn. Ég ætla að tala hreint út, mér er alveg sama. Þetta var aldrei víti. Við sjáum það í hverjum einasta leik að menn fara í skallabolta 50/50 og annar leikur boltanum og hinn ekki. Það er aldrei dæmt. Þetta var aldrei víti," sagði Guðmundur.

„Þeir voru margir dómararnir á Orkumótinu sem hefðu getað gert betur en dómarinn í dag."

„Við erum ekki að skora en við erum samt að koma okkur í ákveðnar stöður. Það vantar aðeins upp á. Það er rosalega súrt þegar á móti blæs að fá á sig svona víti."

„Nú sést bara úr hverju menn eru gerðir. Það er hægt að væla um hitt og þetta, en við erum komnir í þessa holu. Við verðum bara að halda áfram - það er það eina í þessari stöðu."

Viðtalið er hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner