KA vann flottan 3-0 útisigur gegn FH í Kaplakrikanum í kvöld. Fyrir lokaumferðina heldur Akureyrarliðið því í vonina um að geta endað í efri hluta tvískiptingarinnar en þá þarf það að vinna Fylki og vona að önnur úrslit endi því í hag.
Lestu um leikinn: FH 0 - 3 KA
„Þetta er mjög sterkur sigur. Ég er gríðarlega ánægður með að vinna 3-0 gegn góðu FH-liði. Við fórum 2-0 yfir inn í hálfleikinn en mér fannst fyrri hálfleikur mjög jafn. Þeir byrjuðu betur," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir leikinn.
Fannst honum 2-0 forysta KA sanngjörn eftir fyrri hálfleikinn?
„Nei það var ekki sanngjarnt, þeir hefðu getað skorað. Mörkin okkar voru flott en við vorum heppnir að þeir skoruðu ekki. Ég er svo gríðarlega ánægður með síðari hálfleikinn og markið hjá Elfari frábært."
Í lokaumferðinni þarf KA að treysta á að annað hvort FH eða KR tapi, og auðvitað vinna sinn leik, til að enda í efri helmingnum.
„Við erum í séns (fyrir lokaumferðina). Við einbeitum okkur að því að vinna okkar leik og svo sjáum við hvað gerist. Við erum flottir núna, höfum unnið tvo leiki í röð. Við erum gríðarlega ánægðir með sumarið. Við vorum að ströggla aðeins í deildinni á meðan Evrópa var, eins og Breiðablik hefur verið að gera, þetta tekur á. Eins og staðan er núna erum við gríðarlega ánægðir með okkur," sagði Hallgrímur.
Þó gengið í deildinni hafi ekki verið eftir væntingum margra þá leikur KA til úrslita í Mjólkurbikarnum í komandi mánuði.
Athugasemdir






















