Omar Sowe mættur á bekkinn
Klukkan 17:00 tekur ÍBV á móti Keflavík í 9. umferð Bestu deildarinnar. Keflavík hefur leikið mjög vel til þessa á tímabilinu og komið mörgum á óvart en ÍBV er við botninn með einungis tvö stig.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Keflavík
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir þrjár breytingar frá jafnteflisleiknum gegn ÍA. Halldór Jón Sigurður, Bjarki Björn og Arnór Ingi koma inn í liðið. Felix Örn Friðriksson er ekki með en þeir Liam Daði Jeffs og Vicente Valor taka sér sæti á bekknum. Omar Sowe er mættur á bekkinn eftir um árs fjarveru, en Serbarnir Milan Jezdimirovic og Filip Stuparevic eru aftur utan hóps hjá Eyjamönnum. Marcel Zapytowski, sem var varmarkvörður í síðasta leik, tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt á bekknum í síðasta leik.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá sigurleiknum gegn Þór í síðustu umferð. Alpha Conteh er ekki í hóp og Dagur Ingi Valsson byrjar í hans stað. Anton Kralj er ekki í leikmannahópnum en á bekkinn er kominn Edon Osmani.
Byrjunarlið ÍBV:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson
8. Bjarki Björn Gunnarsson
22. Eiður Atli Rúnarsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
27. Róbert Elís Hlynsson
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Byrjunarlið Keflavík:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |


