Paris Saint-Germain vann 2-0 sigur gegn Liverpool í Meistaradeildinni. Yfirburðir Frakklandsmeistarana voru miklir og þeir hefðu hæglega getað unnið stærri sigur.
Eftir 4-0 tap gegn Manchester City um helgina þá ákvað Arne Slot að spila með fimm manna vörn. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að þessi taktíska breyting hafi í raun gert liðið enn opnara.
Eftir 4-0 tap gegn Manchester City um helgina þá ákvað Arne Slot að spila með fimm manna vörn. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að þessi taktíska breyting hafi í raun gert liðið enn opnara.
„Varnarmenn voru að stökkva inn á miðsvæðið og Virgil van Dijk þurfti að hlaupa um og hann gat það ekki. Fólk hefur verið að gagnrýna frammistöðu Van Dijk á tímabilinu og mér finnst það að mörgu leyti ósanngjarnt," segir Carragher.
„Hann spilar alla leiki. Konate við hlið hans hefur verið gjörsamlega afleitur allt tímabilið og var aftur lélegur í þessum leik. Hann gerir mistök í hverjum leik og það er ekki auðvelt að spila þegar það er þannig."
„Mér finnst Van Dijk hafa verið einn besti leikmaður Liverpool en í þriggja miðvarða kerfi í kvöld, ég hef aldrei séð hann áður líða svona óþægilega í Liverpool treyjunni. Ég held að hann biðji Arne Slot um að spila þetta kerfi aldrei aftur."
„En það var ekki bara það að Liverpool gerði mistök leikfræðilega. PSG var algjörlega magnað, þetta var eins og að horfa á Barcelona undir stjórn Pep Guardiola."
Næsti leikur Liverpool er gegn Fulham á laugardaginn en liðið er í harðri baráttu um að spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili.


