Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 09. apríl 2026 10:17
Snæbjört Pálsdóttir
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Eimskip
Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið tilbúið í tvo ólíka en mikilvæga heimaleiki gegn Úkraínu og Englandi.
Guðrún Arnardóttir segir íslenska liðið tilbúið í tvo ólíka en mikilvæga heimaleiki gegn Úkraínu og Englandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún vill sjá fólk á vellinum
Guðrún vill sjá fólk á vellinum
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan og varnarnaglinn, Guðrún Arnardóttir, segir íslenska landsliðið spennt fyrir komandi heimaleikjum gegn Úkraínu og Englandi og telur verkefnið leggjast vel í hópinn.

„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Það er gaman að vera komnar saman aftur. Þetta verða mögulega aðeins ólíkir leikir en ég er spennt fyrir þeim báðum og hlakka til að fá að spila,“ sagði Guðrún þegar Fótbolti.net ræddi við hana.


Hún segir að verkefnin tvö muni kalla á ólíka nálgun.

„Úkraína er náttúrulega öðruvísi lið og þær eru kannski meira beinskeyttar í sínum varnar- og sóknarleik. Eru þannig lið að við verðum kannski aðeins meira með boltann heldur en við vorum á móti Englandi og Spáni, vonumst til þess.“

„Á meðan England er ein af sterkustu þjóðunum í heimi í dag og það krefst þess að vera mjög sterkar í varnarleiknum og kannski aðeins meira hugrekki en við vorum með síðast í sóknarleiknum.“

Guðrún segir einnig að það skipti máli að liðið hafi nýlega verið saman í verkefni.

„Þetta er kannski fest í minnum síðasta verkefni, öðruvísi en var á undan því þar sem við vorum ekki búnar að hittast í hálft ár. Það er auðvitað þægilegra og auðveldara að rifja upp hluti.“

„Það er voða gaman að hitta stelpurnar aftur og manni þykir voða vænt um þennan hóp. Það er alltaf jafn gott að hitta alla og knúsa alla og fá svona kannski update af hvað er í gangi hjá hverjum og einum og svona.“

„Það virðast allir vera í góðu standi og margir sem að gengur vel hjá í sínum félagsliðum og eru fullar sjálfstraust komandi inn í verkefnið. Þannig að ég held að það sé bara góður andi í hópnum.“

Að hennar mati þarf liðið að halda áfram að byggja á sínum styrkleikum.

„Við erum að spila á móti Úkraínu og þær eru mjög aggressíft lið og við þurfum að ná að höndla það og þeirri samviskusemi sem þær búa yfir.“

„Við erum náttúrulega með frábært lið og við erum með frábæra leikmenn. Ég hef alveg trú á því að við skorum mark og við höfum alveg verið duglegar að skora mark þó að við höfum ekki náð því í síðasta glugga.“

„Við erum bara að halda áfram að byggja okkar, þora að halda í boltann og byggja sóknir. Þannig ég held að það komi alveg.“

Hún segir stuðninginn úr stúkunni geta skipt miklu máli.

„Það er ótrúlega mikilvægt, það er alveg ástæða fyrir því að fólk segir að þetta 12. leikmaðurinn af því að þeir gefa manni auka orku og gefa manni kraft.“

„Ég vona að allir sjái að stormurinn er búinn og sólin er mætt, þannig að það er bara góða ástæða til að mæta í stúkuna og vera með okkur í þessu.“

Og skilaboðin eru skýr:

„Eigum við ekki bara að koma á völlinn og gera það svolítið erfitt fyrir hin liðin að mæta okkur.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan


Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    England 4 4 0 0 10 - 1 +9 12
2.    Spánn 4 3 0 1 11 - 2 +9 9
3.    Ísland 4 1 0 3 1 - 6 -5 3
4.    Úkraína 4 0 0 4 2 - 15 -13 0
Slapp
banner