,,Við töpuðum hérna í fyrra og það var jákvætt að koma og vinna þennan leik. Við erum allavega nær Evrópusætinu eftir þennan leik en fyrir hann í ljósi þess að Valur vann í gær og Stjarnan vann líka var það jákvætt," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-3 sigur á Grindavíkurvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 3 FH
,,Við stefnum á Evrópusæti, við eigum erfiðan leik við Vestmannaeyjar í næstu umferð. Við töpuðum illa fyrir þeim í Vestmannaeyjum svo við eigum harma að hefna þar."
FH komst í 3-0 snemma í seinni hálfleik og þá var leikurinn í raun búinn.
,,Í sjálfu sér spiluðum við vel á köflum í fyrri hálfleik og boltinn gekk ágætlega innan liðsins. Við sköpuðum góð færi og skoruðum eitt gott mark."
,,Svo komum við út í seinni hálfleikinn og skoruðum tvö mörk eftir hornspyrnu sem við gerum ekki á hverjum degi. Það kláraði leikinn. Þeir ógnuðu okkur eftir það en mér fannst vörnin halda vel."
Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu að ofan.























