Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   mán 28. september 2015 11:00
Fótbolti.net
Úrvalslið 21. umferðar - Þrír úr Stjörnunni
Atli Sigurjónsson er í liðinu.
Atli Sigurjónsson er í liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Orri skoraði gegn Keflavík.
Halldór Orri skoraði gegn Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Pálsson skoraði markið sem tryggði FH-ingum Íslandsmeistaratitilin um helgina. Emil skoraði sigurmarkið gegn Fjölni eftir að Kennie Chopart hafði jafnað 1-1 fyrir gestina. Þeir eru báðir í úrvalsliði umferðarinnar.


Árni Snær Ólafsson og Gylfi Veigar Gylfason hjálpuðu Skagamönnum að halda hreinu í sigri á Val og þeir Gary Martin og Óskar Örn Hauksson voru á skotskónum þegar KR gulltryggði Evrópusæti með sigri á Leikni.

Atli Sigurjónsson skoraði sigurmarkið og var bestur Blika í 1-0 sigri á ÍBV en Hafsteinn Briem var bestur hjá gestunum í þeim leik.

Guðjón Baldvinsson skoraði þrennu og þeir Halldór Orri Björnsson og Heiðar Ægisson voru báðir á skoktskónum þegar Stjarnan vann sinn stærsta sigur í efstu deild á laugardag en liðið burstaði Keflavík 7-0.

Þjálfari umferðarinnar er Heimir Guðjónsson sem stýrði FH til Íslandsmeistaratitilsins.

Fyrri úrvalslið:
20. umferð
19. umferð
18. umferð
17. umferð
16. umferð
15. umferð
14. umferð
13. umferð
12. umferð
11. umferð
10. umferð
9. umferð
8. umferð
7. umferð
6. umferð
5. umferð
4. umferð
3. umferð
2. umferð
1. umferð
Athugasemdir
banner
banner
banner