Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 20. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Mikið fjör í efstu deildum kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er mikið fjör í íslenska kvennaboltanum þegar fimmta umferð Bestu deildarinnar fer fram á sama tíma og þriðja umferð Lengjudeildarinnar.

Topplið ÍBV og Breiðabliks eiga útileiki gegn FH og Þór/KA í fyrstu leikjum dagsins. Nýliðar ÍBV eru afar óvænt með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðirnar en sitja í öðru sæti á markatölu. Íslandsmeistararnir í liði Blika tróna á toppinum með sjö mörk í plús, Eyjakonur eru með fimm í plús.

Tveir spennandi Reykjavíkurslagir fara svo fram samtímis þegar Víkingur mætir Þrótti og Valur spilar við Fram á meðan afar áhugavert lið Grindavíkur/Njarðvíkur tekur á móti Stjörnunni.

Í Lengjudeildinni heimsækir topplið Hauka erfiða andstæðinga HK til Kópavogs á meðan KR, sem deilir toppsætinu með Haukum, tekur á móti ÍA.

Tindastóll spilar svo við Völsung í Norðurlandsslag á meðan Keflavík og Selfoss eigast við í suðvesturhorninu.

Besta kvenna
18:00 FH-ÍBV (Kaplakrikavöllur)
18:30 Þór/KA-Breiðablik (VÍS völlurinn)
19:15 Víkingur R.-Þróttur R. (Víkingsvöllur)
19:15 Valur-Fram (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Grindavík/Njarðvík-Stjarnan (JBÓ völlurinn)

Lengjudeild kvenna
19:15 HK-Haukar (Kórinn)
19:15 KR-ÍA (Meistaravellir)
19:15 Tindastóll-Völsungur (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Keflavík-Selfoss (HS Orku völlurinn)
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 7 6 0 1 21 - 8 +13 18
2.    FH 7 5 1 1 18 - 9 +9 16
3.    ÍBV 7 4 1 2 13 - 13 0 13
4.    Þróttur R. 7 4 0 3 11 - 7 +4 12
5.    Stjarnan 7 3 2 2 10 - 7 +3 11
6.    Víkingur R. 7 3 0 4 14 - 17 -3 9
7.    Grindavík/Njarðvík 7 2 2 3 8 - 13 -5 8
8.    Valur 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
9.    Fram 7 1 1 5 8 - 18 -10 4
10.    Þór/KA 7 0 2 5 11 - 19 -8 2
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 5 0 0 15 - 8 +7 15
2.    Grótta 5 4 0 1 16 - 7 +9 12
3.    KR 5 4 0 1 14 - 7 +7 12
4.    Keflavík 5 2 1 2 11 - 8 +3 7
5.    ÍA 6 2 1 3 12 - 10 +2 7
6.    Selfoss 5 2 1 2 9 - 8 +1 7
7.    Völsungur 6 2 1 3 10 - 10 0 7
8.    FHL 5 1 1 3 7 - 9 -2 4
9.    HK 5 1 1 3 7 - 13 -6 4
10.    Tindastóll 5 0 0 5 3 - 24 -21 0
Slapp
banner