Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 21:54
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Endar alltaf illa þegar fjölmiðlar skrifa svona fréttir í miðri titilbaráttu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola var svekktur í viðtali eftir 1-1 jafntefli Manchester City gegn Bournemouth í mikilvægum slag í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.

Man City er búið að missa af Englandsmeistaratitlinum útaf jafnteflinu þar sem liðið er fjórum stigum á eftir toppliði Arsenal fyrir lokaumferð tímabilsins.

Þetta var fimmti leikur City á síðustu 15 dögum en síðasti leikur liðsins var úrslitaleikur FA bikarsins gegn Chelsea á laugardaginn. Guardiola gerði aðeins tvær breytingar á byrjunarliðinu á milli leikja og sást það í þreyttum fótleggjum. Þess má geta að þetta var 32. leikur City frá áramótum.

„Við vissum að þetta yrði erfitt, það vantaði uppá orkuna hjá okkur. Við vorum að mæta liði sem fékk 12 daga til að undirbúa sig fyrir leikinn, liði sem spilar af miklum krafti. Sóknarmennirnir þeirra eru svo orkumiklir og við réðum ekki við þá," sagði Pep.

„Við fengum þrjá daga í undirbúning og þurftum að ferðast á milli staða. Strákarnir börðust af miklum krafti og við vorum óheppnir að skora ekki jöfnunarmark fyrr. Nico O'Reilly fékk gott færi og svo var þessi rangstaða á Erling Haaland sem VAR ætti að skoða betur. Við náðum því miður ekki að bregðast við með marki fyrr en alltof seint. Svona er þetta.

„Strákarnir hafa lagt allt í sölurnar á þessu tímabili. Þeir hafa verið að gera sitt besta við krefjandi aðstæður og að lokum komumst við nálægt því að vinna. Ég vil óska Arsenal til hamingju með verðskuldaðan Englandsmeistaratitil. Mikel (Arteta) og starfsteymið hans lögðu inn mikla vinnu og ég óska þeim til hamingju."


Pep var einnig spurður út í framtíð sína hjá Man City eftir háværar fregnir um alla fjölmiðla að hann sé að stíga til hliðar.

„Ég gæti sagt við ykkur að ég er með eitt ár eftir af samningi eins og ég hef verið að gera. Af minni reynslu þá endar það alltaf illa þegar fjölmiðlar skrifa svona fréttir í miðri titilbaráttu. Þetta hefur áhrif á leikmenn.

„Ég er með eitt ár eftir af samningi. Ég get ekki sagt meira þar sem ég á eftir að ræða við forseta félagsins, leikmennina og starfsteymið. Mér líður mjög vel hjá þessu stórkostlega félagi."


   18.05.2026 20:07
Segja að Guardiola hætti eftir tímabilið

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner