Fotbolti.net
20.05.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Evrópudeildin í dag - Emery reynir við fimmta titilinn

Evrópudeildin í dag - Emery reynir við fimmta titilinn
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa mætir Freiburg í spennandi úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fer fram í Istanbúl í kvöld.
Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl

Unai Emery reynir þar við fimmta Evrópudeildarmeistaratitilinn eftir að hafa unnið keppnina þrisvar með Sevilla og einu sinni með Villarreal.

Emery kom Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2019 en steinlá þar gegn Chelsea.

Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun Evrópudeildarinnar sem Aston Villa kemst í úrslitaleikinn, en liðið vann síðast mikilvæga Evrópukeppni fyrir 44 árum.

Aston Villa er búið að fara sannfærandi í gegnum útsláttarkeppnina. Sigrar gegn Lille (3-0), Bologna (7-1) og Nottingham Forest (4-1) tryggðu lærlingum Emery þátttökurétt í úrslitaleiknum.

Freiburg flaug í gegnum leiki gegn Genk (5-2) og Celta Vigo (6-1) áður en liðið lenti í vandræðum gegn Braga (4-3). Freiburg vann seinni leikinn á heimavelli einum leikmanni fleiri en gestirnir frá Portúgal voru óheppnir að knýja leikinn ekki í framlengingu þrátt fyrir liðsmuninn.

Yuito Suzuki er fjarri góðu gamni í herbúðum Freiburg og er ólíklegt að Patrick Osterhage komi við sögu þó hann sé byrjaður að æfa aftur eftir einn og hálfan mánuð frá keppni.

Alysson, Ross Barkley og Boubacar Kamara eru meiddir í hópi Aston Villa á meðan Victor Lindelöf, Amadou Onana og Tyrone Mings eru tæpir.

Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar
19:00 Freiburg - Aston Villa
Evrópudeildin í dag - Emery reynir við fimmta titilinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.