Fotbolti.net
19.05.26 - 23:46
Ívan Guðjón Baldursson

Pep: Munum reyna að vinna allar keppnir

Pep: Munum reyna að vinna allar keppnir
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola var svekktur eftir jafntefli Manchester City gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Bournemouth náði forystunni í fyrri hálfleik og tókst Man City ekki að jafna fyrr en seint í uppbótartíma.

City er það með búið að missa af Englandsmeistaratitlinum og þarf að sætta sig við að hafa unnið báðar bikarkeppnir enska tímabilsins en ekki tekist að endurheimta Englandsmeistaratitilinn.

Þetta er jafnframt í fyrsta sinn í stjóratíð Guardiola hjá City sem liðinu mistekst að vinna deildina tvö ár í röð.

Framtíð Guardiola er í óvissu þar sem enskir fjölmiðlar, þar á meðal BBC og Sky Sports, segja hann vera á förum frá félaginu í sumar þó hann eigi eitt ár eftir af samningi. Þjálfarinn hefur neitað að gefa endanlegt svar yfir hvort hann verði áfram við stjórnvölinn eða ekki, en talið er að Enzo Maresca muni taka við starfinu.

„Við vildum berjast til síðustu umferðar en við gátum það ekki. Við gerðum okkar besta og þurfum að undirbúa okkur fyrir næsta tímabil. Við munum snúa aftur á næstu leiktíð. City mun koma til baka. Við munum berjast og reyna að vinna allar keppnir," sagði Pep eftir lokaflautið.

„Við vorum alltof þreyttir gegn úthvíldu og mjög gæðamiklu liði Bournemouth. Við höfum verið að spila mikið af leikjum á stuttum tíma og leikmenn eru þreyttir. Það hentaði ekki vel að ferðast til og frá London fyrir úrslitaleikinn."

Pep: Endar alltaf illa þegar fjölmiðlar skrifa svona fréttir í miðri titilbaráttu
TENGT EFNI

Pep: Endar alltaf illa þegar fjölmiðlar skrifa svona fréttir í miðri titilbaráttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.