Fotbolti.net
20.05.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Hefur engan áhuga á að yfirgefa Real Madrid

Hefur engan áhuga á að yfirgefa Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga er búinn að missa byrjunarliðssætið sitt í stórveldi Real Madrid og var ekki valinn í franska landsliðshópinn sem fer á HM í sumar.
HM hópur Frakklands: Camavinga ekki með
TENGT EFNI

HM hópur Frakklands: Camavinga ekki með



Camavinga er eftirsóttur af stórveldum víðsvegar um Evrópu en hann ætlar að vera áfram í Madríd og er staðráðinn í að berjast um byrjunarliðssætið.

Hann kom inn af bekknum í sigri gegn Sevilla um helgina og var skælbrosandi að leikslokum. Þetta var hundraðasti sigur Camavinga með Real Madrid í efstu deild spænska boltans.

„Þetta fyllir mig af stolti. Í hvert skipti sem ég mæti til æfinga er ég að hugsa um að vinna titla og það er draumur að vera partur af þessum leikmannahópi. Við verðum að vinna næsta leik og vinna svo allt sem við getum á næstu leiktíð. Markmið félagsins er alltaf að vinna allar keppnir og við verðum að byrja að gera það aftur. Hvort sem það er deildin eða bikarinn þá verðum við að sigra," sagði Camavinga eftir sigurinn gegn Sevilla, en þetta er annað tímabilið í röð sem Real Madrid mistekst að landa titli.

„Ég vil vera áfram hjá Real Madrid eins lengi og mögulegt er. Það er draumurinn minn að spila fyrir þetta félag, mig hefur dreymt um það síðan ég var krakki."

Camavinga hefur spilað 223 keppnisleiki fyrir Real Madrid þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall. Hann á 29 landsleiki að baki fyrir Frakkland og var partur af liðinu sem endaði í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti, en það var ekki pláss fyrir hann í hóp Didier Deschamps í ár. N'Golo Kanté og Manu Koné eru meðal leikmanna sem voru valdir í landsliðshópinn framyfir Camavinga.

Eftirsóttur Camavinga vill vera áfram hjá Real
TENGT EFNI

Eftirsóttur Camavinga vill vera áfram hjá Real

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Hefur engan áhuga á að yfirgefa Real Madrid
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.