Fotbolti.net
19.05.26 - 23:34
Ívan Guðjón Baldursson

Vonast til að fá gjöf frá Arteta

Vonast til að fá gjöf frá Arteta
Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola þjálfari Bournemouth var hress eftir jafntefli á heimavelli við Manchester City í mikilvægum úrvalsdeildarslag fyrr í kvöld.
Bournemouth leiddi stærsta hluta leiksins en Man City tókst að jafna metin undir lok uppbótartímans, svo lokatölur urðu 1-1.

Jafnteflið gerir út um titilvonir Man City sem þýðir að Arsenal hefur tryggt sér langþráðan Englandsmeistaratitil, eftir 22 ára bið.

Mikel Arteta, æskuvinur Iraola, er við stjórnvölinn hjá Arsenal og var Iraola spurður hvort hann búist við gjöf frá vini sínum til að þakka honum fyrir greiðann.

„Það væri æðislegt að fá eitthvað! Ég er ekki einu sinni búinn að skoða símann minn en ég býst við að vera með allavega ein textaskilaboð sem bíða mín," sagði Iraola.

„Þeir hefðu líklega klárað tímabilið sjálfir með sigri í lokaumferðinni. Ég er ánægður fyrir hans hönd því hann er búinn að vinna ótrúlegt starf hjá Arsenal. Þeir eru búnir að vera mjög góðir síðustu tímabil og eiga skilið að hampa titlinum."

Iraola hefur trú á Meistaradeildarsæti
TENGT EFNI

Iraola hefur trú á Meistaradeildarsæti

Vonast til að fá gjöf frá Arteta
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.