Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 21:13
Ívan Guðjón Baldursson
England: Chelsea vann Tottenham sem gæti fallið á sunnudag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Chelsea 2 - 1 Tottenham
1-0 Enzo Fernandez ('18 )
2-0 Andrey Santos ('67 )
2-1 Richarlison ('74 )

Chelsea og Tottenham áttust við í gríðarlega mikilvægum Lundúnarslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og var Chelsea sterkara liðið í bragðdaufum fyrri hálfleik.

Enzo Fernández náði forystunni fyrir heimamenn með laglegu skoti af um 30 metra færi þar sem hann lagði boltann snyrtilega í hornið. Antonín Kinský var mjög lengi að skutla sér og náði ekki til boltans.

Síðari hálfleikurinn var talsvert líflegri heldur en sá fyrri og voru gestirnir sterkari aðilinn. Þeir komust í góðar stöður og sköpuðu fín færi en fengu mark í bakið þegar Andrey Santos skoraði eftir frábærlega útfærða sókn heimamanna í Chelsea sem unnu boltann hátt á vellinum eftir afar slæma sendingu Randal Kolo Muani.

Santos skoraði á 67. mínútu og náði samlandi hans Richarlison að minnka muninn sjö mínútum síðar, en hvorugur þeirra var valinn í brasilíska landsliðshópinn sem fer á HM frekar en Joao Pedro besti leikmaður Chelsea á tímabilinu.

Richarlison skoraði eftir frábæra hælsendingu frá Pape Matar Sarr eftir að Tottenham vann boltann hátt uppi á vellinum þökk sé slæmri skallasendingu frá Marc Cucurella.

Tottenham sótti af krafti og fékk góð færi á lokakafla leiksins en tókst ekki að skora. Lærlingar Roberto De Zerbi vildu fá dæmda vítaspyrnu þegar Marc Cucurella togaði Micky van de Ven til jarðar í hornspyrnu en fengu ekki. Cucurella fékk að líta gula spjaldið fyrir brotið en ekki hægt að dæma vítaspyrnu þar sem boltinn var ekki í leik þegar atvikið átti sér stað.

Tottenham tókst ekki að gera jöfnunarmark svo lokatölur urðu 2-1 fyrir Chelsea.

Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir Chelsea sem lyftir sér upp í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar sem gefur þátttökurétt í Sambandsdeildina næsta haust. Liðið á enn möguleika á að næla sér í Evrópudeildarsæti með sigri gegn Sunderland í lokaumferð deildartímabilsins.

Tottenham gat bjargað sér frá falli úr deildinni með jafntefli á Stamford Bridge í kvöld en er enn í fallhættu þegar lokaumferðina ber að garði.

Spurs tekur á móti Everton í lokaumferðinni og nægir jafntefli til að bjarga sæti sínu í deild þeirra bestu. Tap þýðir að West Ham fær tækifæri til að bjarga sínu sæti í deildinni og fella nágranna sína í leiðinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner