Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
banner
   mán 01. júní 2026 13:40
Kári Snorrason
Sjáðu glæsimörk Gróttu sem tryggðu sigurinn gegn Njarðvík - „Mark ársins!“
Lengjudeildin
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Grótta vann dramatískan 2-1 sigur á Njarðvík í Lengjudeildinni í gær. Liðið er nú í 4. sæti deildarinnar eftir sjö umferðir.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Seltirningar komust yfir snemma í síðari hálfleik eftir frábært skot Gríms Inga Jakobssonar.

Njarðvíkingar jöfnuðu þá metin þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Á 90. mínútu gerði Axel Sigurðarson sér lítið fyrir og skoraði stórbrotið sigurmark.

Lestu um leikinn: Njarðvík 1 -  2 Grótta

ÓTRÚLEGT MARK!!!!!!
Grótta tekur innkastið á Axel sem tekur illa á móti boltanum og ákveður bara að skjóta og sá hitti hann á ótrúlegan hátt sláin, stöngin inn. Guy Smit átti ekki séns í þetta. Þetta verður 100% eitt af mörkum tímabilsins,
skrifaði Kristján Hrafn Kristjánsson, fréttaritari Fótbolta.net, í textalýsingu sinni.

Í lýsingunni á síðara markinu var fullyrt að það væri mark ársins en Livey hefur birt myndskeið af mörkunum tveimur og má sjá þau hér fyrir neðan.


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 7 5 1 1 22 - 13 +9 16
2.    Fylkir 7 5 0 2 12 - 8 +4 15
3.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
4.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
10.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
11.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner
banner