Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. mars 2023 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðurkennir að Kvaratskhelia haldi mikið upp á Real Madrid
Khvicha Kvaratskhelia.
Khvicha Kvaratskhelia.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Khvicha Kvaratskhelia, einn besta leikmanns Evrópuboltans á þessu tímabili, segir að leikmaðurinn elski spænska stórveldið Real Madrid.

Kvaratskhelia, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir Napoli frá Dinamo Batumi í Georgíu fyrir yfirstandandi leiktíð.

Hann hefur verið hreint út sagt stórkostlegur með Napoli - sem er á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar - og verður líklega eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu í sumar.

„Ég og faðir hans erum stuðningsmenn Barcelona en Kvara elskar Real Madrid," sagði Mamuka Jugheli, umboðsmaður Kvaratskhelia, við Geo Team.

„Ef ég sé hann í treyju Barcelona þá verð ég mjög ánægður en hann er stuðningsmaður Madríd. Kvara kann mjög vel við lífið í Napoli."
Athugasemdir
banner
banner
banner