Upplýsingar úr nokkrum æfingaleikjum sem spilaðir voru um liðna helgi hafa borist til Fótbolta.net og má sjá þau hér að neðan. Upplýsingar um markaskorara má senda á [email protected].
Stærsti leikurinn var sennilega Lengjudeildarliðanna HK og Vestra sem spilaður var í Kórnum á laugardag. Leikurinn átti upprunalega að vera í Lengjubikarnum en félögin féllust á að fresta Lengjubikarsleiknum því nýir leikmenn Vestra, sem koma erlendis frá, fá ekki leikheimild fyrr en seinna í þessari viku.

HK 4 - 2 Vestri
1-0 Dominik Radic
2-0 Arnþór Ari Atlason
2-1 Abdo Diagne
3-1 Tumi Þorvarsson
3-2 Sergine Fall (víti)
4-2 Dagur Ingi Axelsson
2. deildar lið Kára lék þá tvo æfingaleiki gegn liðum í sömu deild. Liðið vann Selfoss á föstudag 4-2 þar sem þeir Matthías Daði Gunnarsson, Jón Breki Guðmundsson, Marinó Hilmar Ásgeirsson og Grétar Jónatan Pálmason skoruðu mörk Kára. Á laugardag vann Kári gegn Þrótti Vogum, 3-2 lokatölur. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson, Daníel Michal Grzegorzsson og Grétar Jónatan skoruðu mörk Kára í leiknum.
Fleiri leikir voru spilaðir á laugardag, KV vann 3-1 sigur á KFG og Ýmir vann Árborg, 2-1. Mörk Ýmis: Óliver Úlfar Helgason og Styrmir Hjaltalín. Mörk KV: Vilhelm Bjarki Viðarsson, Magnús Valur Valþórssonog Einar Þórðarson.
Á föstudag vann Þór gegn Dalvík/Reyni á Dalvíkur velli. Daninn Christian 'Greko' Jakobsen skoraði eina mark leiksins fyrir Þór.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir