Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Ofurvaramaðurinn Sesko kom Man Utd yfir
Mynd: EPA
Enn eina ferðina er Benjamin Sesko að koma inn á sem varamaður og setja mark sitt á leik Man Utd.

Sesko hefur komið inn á sem varamaður í síðustu þremur leikjum og skorað tvö mörk. Hann byrjaði á bekknum gegn Everton í kvöld en kom inn á og var ekki lengi að skora.

Man Utd hefur fengið góð tækifæri til að skora en það var Sesko sem braut loksins ísinn.

Sesko kom inn á fyrir Amad Diallo eftir tæplega klukkutíma leik og rúmum tíu mínútum síðar skoraði hann og kom Man Utd yfir. Matheus Cunha átti langa sendingu fram á Bryan Mbeumo. Hann var óeigingjarn og sendi á Sesko sem skoraði framhjá Jordan Pickford.

Sjáðu markið hér

Athugasemdir
banner
banner